Ráðstefna 2026

Auðlindin skapar tækifærin – reynsla, þekking og nýsköpun skapa forskotið

Sú hefð hefur skapast að ráðstefna hvers árs hefur sína megin yfirskrift sem myndar rauðan þráð í málstofum. Yfirskrift ráðstefnunnar í ár er „Forskotið fylgir fisknum! – Auðlindin skapar tækifærin – reynsla, þekking og nýsköpun skapa forskotið

Opnunarmálstofan setur tóninn fyrir ráðstefnuna með lifandi samtali um leiðina fram á við þar sem sjónarmið stjórnvalda, atvinnulífs og virkt samspil við gesti ráðstefnunnar mætast.

Þar verður fjallað um hvernig skapa má sameiginlega stefnu og framtíðarsýn sem byggir á trausti, gagnsæi og sátt milli þjóðar og atvinnugreinar. Breytt rekstrarumhverfi og alþjóðleg samkeppni kalla á að við skoðum hvernig tryggja megi jafnvægi milli þjóðarhagsmuna og samkeppnishæfni greinarinnar. Hvernig nýtum við þjóðarauðlindina á sjálfbæran hátt, tryggjum nýsköpun og verðmætasköpun innanlands og verjum um leið störf og lífsgæði í sjávarbyggðum?

Við undirbúning ráðstefnunnar í ár hefur tekist vel að halda yfirskriftinni sem þræði í gegnum málstofur og búast má við þéttri dagskrá og líflegum erindum í þeim átta málstofum sem faghópar hafa sett saman. Von er að viðfangsefnin muni fræða, vekja til umhugsunar, hvetja til hugmynda, úrlausna og samstarfs allra hagaðila íslensks sjávarútvegs.

Til að halda utan um yfirskrift ráðstefnunnar verður samantektarmálstofa í lok ráðstefnunnar sem verður í höndum Bergs Ebba Benediktssonar. Þar verður dregið saman það markverðasta og helsti lærdómurinn sem draga má af ráðstefnunni og reynt að varpa ljósi á það sem styrkir greinina inn í framtíðina.

Auðlindin, nýting og veiðar

Tvær málstofur verða haldnar um auðlindina, nýtingu hennar og veiðar.

  • Rétturinn til að semja um fiskinn?
  • Hvað er verið að rekja?

Rétturinn til að semja um fiskinn?
Farið verður yfir hver sé samningsréttur strandríkja um fiskistofna sem synda á milli lögsagna og virða engin landamæri. Um hvaða fiskistofna er verið semja og er hægt að segja að einhver fiskistofn sé bara íslenskur? Kynnt verður hvaða leikreglur gilda og hvernig staðan er fyrir samtök að standa innan ESB og horfa á þetta samningssvið sjávarútvegs.

Hvað er verið að rekja?
Farið verður yfir sviðið með kastljósi krafna um rekjanleika í virðiskeðjunni og gagnsæi. Rætt verður um rekjanleikakerfi í matvælavinnslunni innan fyrirtækja og hvernig upplýsingar eru notaðar til að upplýsa um ferð fisksins sem afurð frá veiðum til vinnslu og áfram til verslana og neytenda. Hvernig Fiskistofa hefur tryggt gagnsæi og aðgengi að upplýsingum um íslenskar fiskveiðar og hvernig gagnsæi og rekjanleiki er til staðar í öðrum fiskveiðistjórnunarkerfum.

Í faghópnum eru þau Friðrik Friðriksson, Arnar Laxdal, Pamela Woods, Húnbogi S. Gunnþórsson og Elín B. Ragnarsdóttir

Vinnsla sjávarafurða

Tvær málstofur verða haldnar undir „Vinnslu sjávarafurða“ og er umfjöllunarefnið nýting og vinnsla á mögulegum hliðarafurðum í og við vinnslu sjávarfangs, og þá umfjöllun um afurðir fluttar út frá Íslandi til samanburðar við hráefni flutt út til frekari vinnslu á erlendri grundu:

  • Hliðarafurðir
  • Óunnið úr landi

Málstofan “Óunnið úr landi” var unnin í samvinnu við faghóp “Markaðssetning, sala og dreifing“ – sjá að neðan.

Í faghópnum eru þeir Friðrik Guðmundsson, Jón Örn Stefánsson, Reynir Friðriksson & Sigurjón Arason.

Markaðssetning, sala og dreifing

Ein málstofa verður haldin um markaðssetningu, sölu og dreifingu sjávarafurða.

  • Tvær sviðsmyndir og árið í lífi þorsks og lax

Málstofan dregur upp mynd af stöðu og þróun helstu markaða fyrir íslenskar sjávarafurðir, með áherslu á breytingar í eftirspurn, neyslu og samkeppnisumhverfi í Norður-Ameríku og Asíu. Sérstaklega verður horft til þróunar í þorski og laxi, framboðs, verðs og markaðsaðstæðna og hvaða sviðsmyndir kunna að vera fram undan.

Í faghópnum eru þau Benedikt Bergmann Arason, Hlynur Guðjónsson, Kolbrún Sveinsdóttir og Kristinn Björnsson.

Mannauður, samskipti og rekstur 

Ein málstofa verða haldin um mannauðsmál, samskipti og rekstur í sjávarútvegi. 

Spilum við í sama liði? Ný kynslóð, aðrar áherslur og ímynd geinarinnar

Umræðan um sjávarútveg á Íslandi hefur lengi einkennst af ólíkum sjónarmiðum og ímynd greinarinnar hefur oft verið neikvæð, hvort sem vel gengur eða illa. Á sama tíma kallar samfélagið eftir auknu gagnsæi og ný kynslóð er að stíga inn í fyrirtækin. Getur ný kynslóð breytt ímynd sjávarútvegsins? Hvernig byggjum við upp traust, bæði innan greinarinnar og gagnvart samfélaginu? Spilum við í raun öll í sama liði?
Í þessari málstofu verður tekist á við þessi álitaefni og hvernig við getum byggt upp sterkari liðsheild innan greinarinnar og gagnvart samfélaginu.

Í faghópnum eru þau Alda Björk Óskarsdóttir, Anna Hedvig Þorsteinsdóttir, Bernharð Aðalsteinsson, Jóna Brynja Birkisdóttir og Kristján Ingimarsson

Stefnumótun, rannsóknir og umhverfismál

Tvær málstofur verða haldnar um stefnumótun, rannsóknir og umhverfismál í sjávarútvegi.

  • Að stækka kökuna – Rannsóknir sem drifkraftur nýrra verðmæta

Hugverk í sjávarútvegi – frá hugmynd til verðmæta

Að stækka kökuna  – Rannsóknir sem drifkraftur nýrra verðmæta
Hvernig tryggjum við að rannsóknir, nýsköpun og stefnumótun styðji áframhaldandi samkeppnishæfni íslensks sjávarútvegs? Hver er staða þekkingar í dag, hvaða verkefni eru að skila árangri og hvernig breytum við rannsóknum í raunverulegt virði fyrir atvinnugreinina, samfélagið og umhverfið?

Hugverk í sjávarútvegi – frá hugmynd til verðmæta
Efni málstofunnar snýr á einfaldan hátt að því hversu tengdir hugverkaiðnaðurinn og sjávarútvegurinn eru á Íslandi og hversu mikilvægu hlutverki þessar greinar hafa gegnt hver fyrir aðra í gegnum tíðina.

Í faghópnum eru þau Anna Kristín Daníelsdóttir, Christophe Pampoulie, Guðrún Svana Hilmarsdóttir, Guðjón Már Sigurðsson og Elías Mikael Vagn Siggeirsson

Scroll to Top