Fundarboð og dagskrá aðalfundar 2026

Fundarboð og dagskrá aðalfundar 2026

Stjórn Sjávarútvegsráðstefnunnar ehf boðar til aðalfundar vegna starfsársins 2025 þann 26. nóvember 2026 kl. 10:00 í Sjávarklasanum, Grandagarði 16.

Stjórn Sjávarútvegsráðstefnunnar ehf., kt. 500310-1380, boðar til aðalfundar vegna starfsársins 2025.

  • Fundardagur: 26. nóvember 2026.
  • Fundartími: Kl. 10:00.
  • Fundarstaður: Grandagarði 16, Sjávarklasinn, fundarherbergi Brúin.

Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa verður borin upp eftirfarandi tillaga:

Tillaga til hluthafafundarins er að fundurinn feli Karli Hjálmarssyni, Iceland Seafood International og Friðrik Friðrikssyni, Brim, að undirbúa heildstæðar endurskoðaðar tillögur til aukahluthafafundar um endurskoðaðar samþykktir fyrir Sjávarútvegsráðstefnuna ehf. Halda skal aukahluthafafundinn fyrir lok maí 2027.

Fundarboð, dagskrá, tillaga verður aðgengileg á vefsíðu ráðstefnunnar, sjavarutvegsradstefnan.is. Gögnin verða einnig aðgengileg skráðum hluthöfum og send þeim sem þess óska.

Hluthafi getur látið umboðsmann sækja fundinn og fara með atkvæðisrétt sinn. Umboðið skal vera skriflegt eða rafrænt og dagsett. Sérstakt umboðseyðublað fylgir fundarboðinu. Óskað er eftir að umboð berist fyrirfram til: fridrik@brim.is til að auðvelda yfirferð; það er ekki sjálfstætt skilyrði fyrir notkun gilds umboðs á fundinum. Umboð skal lagt fram við skráningu.

Fyrirspurnir um fundinn má senda til Friðriks Friðrikssonar, fridrik@brim.is.

Fundurinn verður einnig á “Teams” og verður linkur sendur út á alla hluthafa ásamt fundarboði á næstunni.

Fyrir hönd stjórnar Sjávarútvegsráðstefnunnar ehf.,
Reykjavík, 11. nóvember 2026
Karl Hjálmarsson
Formaður stjórnar sjávarútvegsráðstefnunnar ehf.

Fleiri fréttir

Scroll to Top