Ráðstefna 2026
Forsíða » Verkefnið » Fyrri ráðstefnur » 2026 Ávarp formanns
Sjávarútvegsráðstefnan
Ávarp formanns
Sjávarútvegsráðstefnan er nú haldin í 14 sinn en hún var fyrst haldin á Grand hótel árið 2010. Það má með sanni segja að ráðstefnan hafi fest sig í sessi og sé orðin fastur punktur í tilveru ansi margra fyrstu vikuna í nóvember á ári hverju, enda frábær vettvangur fyrir greinina.
Hugmynd og tilgangur ráðstefnunnar er að vera hlutlaus og faglegur vettvangur fyrir alla sem tengjast sjávarútvegi á Íslandi. Sjávarútvegsráðstefnan snýst ekki um hagsmunagæslu einstakra hópa heldur um að leiða saman ólík sjónarmið, miðla þekkingu og ræða mikilvæg málefni sjávarútvegsins. Þar gefst fólki tækifæri til að koma málum á framfæri, fræðast og skiptast á skoðunum þvert á greinina. Það er dýrmætt fyrir sjávarútveginn að eiga slíkan vettvang þar sem ólík sjónarmið fá að heyrast. Vonin er að sú umræða leiði til nýrra hugmynda og verði hvatning til góðra verka.
Sú hefð hefur skapast að ráðstefna hvers árs hefur sína yfirskrift sem myndar rauðan þráð í málstofum og efnistökum ráðstefnunnar. Yfirskriftin í ár er „Forskotið felst í fisknum” en á einfaldri íslensku þýðir það að “Sá sem fær fiskinn, fær líka forskotið” eitthvað sem okkur íslendingum ætti að vera að fullu ljóst enda höfum við náð miklum árangri á flestum þeim sviðum sem tengjast sjávarútvegi þar sem fiskurinn hefur verið okkar. Það hlýtur því að vera umhugsunarefni hvort að við séum tilbúin að gefa það forskot eftir til annarra með stórauknum útflutningi á óunnu hráefni eða hvort að við ætlum ekki að halda áfram að spila í efstu deild eins og hingað til. Annað kemur eiginlega ekki til greina og því til mikils að vinna að við gerum umhverfið eins samkeppnisvænt og hægt er og fórnum ekki langtíma hagsmunum fyrir skammtímagróða og skyndikynni Við getum ekki fært öðrum forskotið með því að flytja það út. Að því þurfa allir hluteigandi aðilar að koma og hvar er betri vettvangur til þess að taka samtalið um þá framtíðarvinnu sem fram þarf að fara en akkúrat á Sjávarútvegsráðstefnunni.
Missum ekki niður forskotið, aukum það.