Erindi og myndir á vef ráðstefnunnar
Nú er hægt að sækja öll erindi sem haldin voru á Sjávarútvegsráðstefnunni 2018 á vef félagsins. Jafnframt er hægt að sækja fjölda mynda sem teknar voru á ráðstefnustað á vef Sjávarútvegsráðstefnunnar.
Þátttakendur
Skráðir þátttakendur voru rúmlega 740 að þessu sinni aðeins fleiri en í fyrra.
Stjórn Sjávarútvegsráðstefnunnar
Í stjórn Sjávarútvegsráðstefnunnar koma nú fjórir nýir, en það eru; Ásbjörn Daníel Ásbjörnsson, Freydís Vigfúsdóttir, Hólmfríður Sveinsdóttir og Magnús Valgeir Gíslason.
Þeir sem sitja áfram annað árið í stjórn Sjávarútvegsráðstefnunnar eru: Axel Helgason, Bjarni Eiríksson, Margrét Geirsdóttir og Sturlaugur Sturlaugsson.
Þeir sem ganga úr stjórn eru: Helga Franklínsdóttir, Daði Már Kristófersson, Gísli Kristjánsson og Jón Þrándur Stefánsson.
Þeim er þakkað góð störf.

Stjórn Sjávarútvegsráðstefnunnar, frá vinstri: Magnús Valgeir Gíslason, Ásbjörn Daníel Ásbjörnsson, Freydís Vigfúsdóttir, Bjarni Eiríksson, Margrét Geirsdóttir, Axel Helgason, Hólmfríður Sveinsdóttir og Sturlaugur Sturlaugsson.
Drifkrafturinn
Á síðustu árum hefur framlag styrktaraðila verið drifkrafturinn við uppbyggingu á Sjávarútvegsráðstefnunni. Að þessu sinni eru aðalstyrktaraðilar Sjávarútvegsráðstefnunnar: Arion banki, Icelandair Cargo, Tryggingarmiðstöðin, Oddi, HB Grandi, Eimskip og Wise. Jafnframt sem aðalstyrktaraðili veitti AVS sjóðurinn styrk til að þróa nemendavettvang Sjávarútvegsráðstefnunnar og Vinnslustöðin veitt styrk til að fjármagna boðsmið fyrir nemendur í sjávarútvegstengdu námi. Það má heldur ekki gleyma framlagi fyrirlesara, stjórn félagsins o.fl. sem hafa gefið sitt vinnuframlag
Ertu með hugmynd?
Ef þú ert með hugmynd af málstofu eða erindi sendu þá tölvupósta á valdimar@sjavarutvegur.is eða hafðu beint samband við einn af stjórnarmönnum í stjórn Sjávarútvegsráðstefnunnar. Stjórn félagsins velur úr hugmyndum og er stefnt að því að birta heiti á flestum málstofum í apríl á næsta ári.