Næsta Sjávarútvegsráðstefna verður haldin í Hörpu dagana 15.-16. nóvember.
Dagskrá Sjávarútvegsráðstefnunnar 2018
Á Sjávarútvegsráðstefnunni 2018 verða 17 málstofur og er nú búið að skipuleggja 15 málstofur og í þeim verða flutt 75 erindi. Í tveimur málstofum eru keypt erindi og verða þær kynntar seinna. Það sem tekið verður fyrir á Sjávarútvegsráðstefnunni 2018 er m.a.: Markaðsmál, vottanir, umhverfismál, hönnun, starfsumhverfi, greiningar, framtíðartækni, uppruni, vörumerki og margt fleira. Í fyrsta skipti verður nú sérstök nemendamálstofa og hraðstefnumót – Samtal forsvarsmanna í sjávarútvegi og nema.
Ert þú með framúrstefnuhugmynd til að efla íslenskan sjávarútveg og tengdar atvinnugreinar?
Ef þú ert hugmyndsmiður, hugsar út fyrir boxið, endilega sendu þá inn framúrstefnuhugmynd. Skilafrestur framúrstefnuhugmyndar er þann 15. október. Nánar upplýsingar á vef ráðstefnunnar.
Framúrstefnuhugmynd – fyrri verðlaunahafar
Framúrstefnuverðlaun hefur verið úthlutað fimm sinnum og eftirtaldir fengið fyrstu verðlaun:
- Árið 2011: Halla Jónsdóttir, Optitog og samstarfsmenn með framúrstefnuhugmyndina Ljósveiðar og ljósvarpa.
- Árið 2012: Björn Björnsson með hugmyndina Lágtíðnihljóðmerki til fiskveiða – Hljóð til að safna saman fiski?
- Árið 2013: Sigmar Guðbjörnsson með hugmyndina Fiskval sem flokkar frá óæskilegan fisk úr botnvörpu á veiðidýpi.
- Árið 2014: Unnsteinn Guðmundsson, 4Fish með hugmyndina Sporðskurðarvél.
- Árið 2015: Snorri Hreggviðsson og samstarfsmenn með hugmyndina Lýsi úr makríl, síld og loðnu til manneldis. Marlýsi.
- Árið 2016: Albert Högnason, 3X Technology og Gunnar Þórðarson, Matís með hugmyndina Ofurkælingu á fiski.
- Árið 2017: Vilhjálmur Hallgrímsson, Fisheries Technologies með hugmyndina The Fisheries Manager, sem er nýtt alhliða upplýsingakerfi fyrir fiskveiðistjórnun.