Styrktarlínur
Sjávarútvegsráðstefnan 2023 er tólfta ráðstefna vettvangsins. Stuðningur styrktaraðila hefur gefið okkur kost á að halda ráðstefnugjöldum í hófi og ná því markmiði að fá 700-800 manns á Sjávarútvegsrástefnuna á síðustu árum. Sjávarútvegsráðstefnan er stærsti árlegi vettvangur allra sem starfa í sjávarútvegi. Við óskum eftir áframhaldandi góðu samstarfi og að þið hafið einnig verulegan ávinning að vera styrktaraðili Sjávarútvegsráðstefnunnar.
GULL samstarfsaðili 950.000 kr + VSK.
Ávinningur aðalstyrktaraðila:
- Boðsmiðar: Aðgöngumiðar inn á ráðstefnuna fyrir 10 manns.
- Ráðstefnuhefti: Eina blaðsíða í rafrænu ráðstefnuhefti (210×297 mm).
- Sýningarrými: Stærð (4 x 2 m) á besta stað í Flóa þar sem veitingar eru eða minni básar á fyrstu og annarri hæð.
- Merki fyrirtækis:
- Áberandi á forsíðu ráðstefnuheftis, ráðstefnuvef, fréttabréfum, samfélagsmiðlum og auglýsingum.
- Merki fyrirtækisins verður varpað á tjald í ráðstefnusal áður en hún hefst, meðan panel stendur yfir og í kaffi og matartímum.
- Jafnframt verður merki fyrirtækis að finna á forsíðuglæru allra fyrirlesara.
- Á öllum skjáum með dagskrá framan við ráðstefnusali og á öllum barmmerkjum þátttakenda.
Viðmiðið er að aðeins einn úr hverri þjónustugrein sjávarútvegs sé Gull styrktaraðili: banki, flutningsfyrirtæki, tækjaframleiðendi með fiskvinnubúnað eða veiðarfæri, söluaðili umbúða, tryggingarfélag, útflytjandi fiskafurða, samtök o.s.frv.
SILFUR samstarfsaðili 350.000 kr +VSK.
Ávinningur styrktaraðila:
- Boðsmiðar: Aðgöngumiðar inn á ráðstefnuna fyrir 6 manns og innifalið eru allar veitingar og ráðstefnugögn.
- Merki fyrirtækis: Á vefsíðu ráðstefnu, bakhlið ráðstefnuheftis sem jafnframt verður að finna á vef ráðstefnunnar.
- Sýningarrými: (3 x 2 m) í Flóa þar sem veitingar eru.
- Auglýsing/kynning: Hálfa blaðsíðu í ráðstefnuhefti (148 x 210 mm, landscape) til kynningar á sínu fyrirtæki eða auglýsingu.
BRONS samstarfsaðili 200.000 kr + VSK.
Ávinningur styrktaraðila:
- Boðsmiðar: Aðgöngumiðar inn á ráðstefnuna fyrir 3.
- Merki fyrirtækis: á vefsíðu ráðstefnu, bakhlið ráðstefnuheftis sem verður einnig að finna á vef ráðstefnunnar.
- Sýningarrými: (2 x 2 m) í Flóa þar sem veitingar eru.
Styrktaraðili – Sjávarútvegsfyrirtæki 275.000 kr + VSK.
Ávinningur styrktaraðila:
- Merki fyrirtækis: Á vefsíðu ráðstefnu, bakhlið ráðstefnuheftis og einnig dagskrá sem verður að finna á vef ráðstefnunnar.
- Boðsmiðar: Aðgöngumiðar inn á ráðstefnuna fyrir 10 manns.
Nánari upplýsingar gefur Valdimar Ingi Gunnarsson (valdimar@sjavarutvegur.is) og sími 695 2269