Loka

„Svifaldan” verðlaunagripurinn fyrir Framúrstefnuhugmynd Sjávarútvegsráðstefnunnar 2016 var nú veitt í sjötta sinn, en markmiðið er að efla umræður og hvetja til nýrrar hugsunar með framsæknum og frumlegum hugmyndum. Svifaldan er gefin af TM, en jafnframt var veitt verðlaunafé og viðurkenningar til þeirra sem standa að þremur bestu hugmyndunum.

Gunnar Þórðarson, Matís og Albert Högnason, 3X Technology hlutu fyrstu verðlaun í samkeppninni Framúrstefnuhugmynd Sjávarútvegsráðstefnunnar 2016. Hugmyndin er ofurkæling á botnfiski niður í -0,7 °C og -1,5 °C í laxi. Með ofurkælingu er átt við að færa kæliorku inn í fiskvöðvann strax eftir veiðar/slátrun, þar sem innan við 20% af vatnsinnihaldi er fryst. Engar skemmdir verða á frumum vegna ískristallamyndunar og geymsluþol afurðar lengist í samanburði við hefðbundnar leiðir við kælingu á fiski. Mikil tækifæri geta legið í flutningi á ofurkældum ferskum fiski þar sem mikið sparast við að losna við ís í flutningskeðju, sérstaklega með flugi. Þó svo að ofurkæling sé í sjálfu sér ekki ný af nálinni, þá er tæknin og búnaðurinn sem þróaður hefur verið í kringum þessa „framúrstefnuhugmynd“ ný nálgun sem hefur þegar orðið grundvöllur að nýrri hugsun við veiðar og vinnslu innan lands sem utan.

Í öðru til þriðja sæti var framúrstefnuhugmyndin Vistvænt íslenskt skip. Að þessari hugmynd koma Sigríður Ragna Sverrisdóttir, Hafið – Öndvegissetur um sjálfbæra nýtingu og verndun hafsins í samstarfi við Skipasýn, RENSEA, Klappir ehf. og Viðskiptahúsið.  Hugmyndin  snýr að því að hanna og smíða 48 metra vistvænt línuskip þar sem öll umhverfisáhrif af starfsemi skipsins eru lágmörkuð.

Í öðru til þriðja sæti var einnig framúrstefnuhugmyndin Strandveiðiþjarkur með fjarstýringu en að henni stendur Árni Thoroddsen. Hugmyndin felst í því að strandveiðibátþjarka er fjarstýrt frá landi eða móðurskipi á sjó til að stunda krókaveiðar á grunnmiðum.

Nánari upplýsingar um Framúrstefnuhugmyndir Sjávarútvegsráðstefnunnar 2016 er að finna í ráðstefnuhefti Sjávarútvegsráðstefnunnar sem hægt er að sækja á vef félagsins:  https://sjavarutvegsradstefnan.is/

 Myndin er af Albert Högnasyni, 3X Technology